Published: August 3, 2010
Prenta    Senda í Póst

Loksins á Íslandi:

Námskeið um sjálfskaða með Patrick De Chello Ph.D., LCSW, MSW, RPH.

Námskeiðið er sérsniðið að heilbrigðisstarfsfólki og öðrum meðferðaraðilum sem starfa við að hjálpa fólki sem stríðir við sjálfskaða og aðra sjálfskaðandi hegðun.

Lesa Meira...



Published: October 7, 2009

Meðferðargangurinn skorinn niður

Fangelsismál Fjárheimild sem meðal annars hefur verið notuð til rekstrar svonefnds meðferðargangs á Litla-Hrauni er felld niður í frumvarpi til fjárlaga fyrir næsta ár. Um er að ræða 36 milljónir króna sem einnig hafa verið nýttar í þágu fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

"Við höfum fengið niðurskurðarkröfu eins og aðrir," segir Páll E. Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar. "Verði þetta endanleg niðurstaða er ljóst að við komumst ekki hjá því að hagræða. Meðferðargangur er, eins og annað í okkar starfsemi, þar undir.

Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvernig við munum útfæra þetta. Við höfum áður fengið styrk til rekstrar meðferðargangsins úr þeirri fjárheimild sem nú hefur verið þurrkuð út."

//heimasíða meðferðargangs: http://edrumenn.blogspot.com/ //

Lesa Meira...



Reykingar stytta lífiđ um 10 ár
Published: September 29, 2009

Reykingar stytta lífið um 10 ár
Karlmenn sem reykja, eru með of háan blóðþrýsting og of mikið kólesteról lifa tíu árum skemur en þeir sem reykja ekki og eru með eðlilegan blóðþrýsing og kólesteról. Þetta er niðurstaða breskrar rannsóknar á áhrifum sígeruttureykinga sem staðið hefur yfir í 40 ár og BBC greinir frá í dag.

 

Lesa Meira...



Vilja ađ tóbak verđi tekiđ úr almennri sölu
Published: September 29, 2009

 Vilja að tóbak verði tekið úr almennri sölu
 
Tóbaksvarnaþing Læknafélags Íslands samþykkti ályktun þann 11. september sl. þar sem hvatt er til þess að Ísland verði fyrsta landið í heiminum til að taka tóbak alfarið úr almennri sölu.
Þingið hvatti til þess að reykingamenn og þeir sem ekki reykja, sýndu hver öðrum skilning, virðingu og tillitssemi. Tekið var fram að ályktanir þingsins beindust ekki gegn reykingamönnum. Þingið lagði áherslu á að best væri að hefja aldrei reykingar og ólíðandi væri að daglega ánetjuðust 2-3 ungmenni nikótíni hérlendis. Aðgerðirnar ættu ekki síst að beinast að því að minnka nýliðun reykingamanna.


Lesa Meira...



Skađar áfengi ađeins alkólhólista?
Published: September 29, 2009

 Skaðar áfengi aðeins alkóhólista?

 

Nýlega var gerð könnun í Noregi á viðhorfi fólks til skaðsemi áfengisneyslu.  Fólk var beðið um álit sitt á þeirri staðhæfingu að "áfengi skaði aðeins alkóhólistana" en í könnuninni kom fram að aðeins um 4% aðspurðra voru sammála fullyrðingunni.  "Þetta sýnir að flestum er orðið kunnugt um almenn skaðleg áhrif áfengisneyslu á heilsu og líf fólks í Noregi" segir Jens J. Gusland deildarstjóri á Lýðheilsustöð Noregs, "og hafa í meira mæli verið fylgjandi stefnu stjórnvalda í áfengismálum. Fólk er meir og meir sáttara við einkasölu ríkisins á áfengi og skertan opnunartíma vínveitingastaða". 

Lesa Meira...