Meðferðargangurinn skorinn niður
Fangelsismál Fjárheimild sem meðal annars hefur verið notuð til rekstrar svonefnds meðferðargangs á Litla-Hrauni er felld niður í frumvarpi til fjárlaga fyrir næsta ár. Um er að ræða 36 milljónir króna sem einnig hafa verið nýttar í þágu fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
"Við höfum fengið niðurskurðarkröfu eins og aðrir," segir Páll E. Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar. "Verði þetta endanleg niðurstaða er ljóst að við komumst ekki hjá því að hagræða. Meðferðargangur er, eins og annað í okkar starfsemi, þar undir.
Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvernig við munum útfæra þetta. Við höfum áður fengið styrk til rekstrar meðferðargangsins úr þeirri fjárheimild sem nú hefur verið þurrkuð út."
//heimasíða meðferðargangs: http://edrumenn.blogspot.com// //
Lesa Meira...
Karlmenn sem reykja, eru með of háan blóðþrýsting og of mikið kólesteról lifa tíu árum skemur en þeir sem reykja ekki og eru með eðlilegan blóðþrýsing og kólesteról. Þetta er niðurstaða breskrar rannsóknar á áhrifum sígeruttureykinga sem staðið hefur yfir í 40 ár og BBC greinir frá í dag.Skaðar áfengi aðeins alkóhólista?
Nýlega var gerð könnun í Noregi á viðhorfi fólks til skaðsemi áfengisneyslu. Fólk var beðið um álit sitt á þeirri staðhæfingu að "áfengi skaði aðeins alkóhólistana" en í könnuninni kom fram að aðeins um 4% aðspurðra voru sammála fullyrðingunni. "Þetta sýnir að flestum er orðið kunnugt um almenn skaðleg áhrif áfengisneyslu á heilsu og líf fólks í Noregi" segir Jens J. Gusland deildarstjóri á Lýðheilsustöð Noregs, "og hafa í meira mæli verið fylgjandi stefnu stjórnvalda í áfengismálum. Fólk er meir og meir sáttara við einkasölu ríkisins á áfengi og skertan opnunartíma vínveitingastaða".
Haustönn Ráðgjafarskólans hófst mánudaginn 15. september. Þetta er 8. starfsönn skólans og hafa nemendur aldrei verið fleiri, eða 21. Stefán Jóhannsson skólastjóri Ráðgjafarskólans segir ánægjulegt hve mikill áhugi sé á skólanum. ,,Þetta sýnir að þeir sem sinna ráðgjöf vilja gera vel og búa sig sem best undir það erfiða hlutverk sem starf ráðgjafans getur verið,” segir Stefán.
| Eldri » |