Siđareglur Áfengis- & VímuefnaráđgjafaPublished: April 27, 2008
Siðareglur áfengis- og vímuefnaráðgjafa.
Samtök áfengis- og vímuefnaráðgjafa samanstanda af atvinnuráðgjöfum en þeir sem ábyrgir atvinnumenn í umönnun trúa á reisn og virðingu mannsins. Í framkvæmd starfs síns leggja þeir áheyrslu á að siðfræðilegar grundvallarreglur sjálfræðis, velvildar og réttlætis verða að stýra hegðun þeirra í starfi. Sem atvinnumenn sem hafa helgað sig meðferð skjólstæðinga sem eru háðir vímefnum og fjölskyldna þeirra trúa þeir að þeir geti veitt meðhöndlun sem virka á einstaklinga og fjölskyldur. Áfengis- og vímuefnaráðgjafa helga sig því að vinna til heilla samfélagins, skjólstæðinga, og starfsfélga. Regla 1: Fordómaleysi.
Áfengis- og vímuefnaráðgjafi má ekki mismuna skjólsræðingum eða samstarfmönnum á grundvelli kynþáttar, trúarbragða, aldurs, kynferðis, fötlunnar, kynhneigðar, eða efnahagslegrar stöðu.
Regla 2: Ábyrgð.
Áfengis- og vímuefnaráðgjafi verður að tileinka sér hlutleysi og heillindi og gæta ýtrustu siðgæðisreglna í þeirri þjónustu sem hann veitir.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi sem kennari verður að viðurkenna frumskyldu starf síns sem er að hjálpa öðrum að öðlast færni og þekkingu á því að fást við vímuefnasjúkdóminn.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi sem starfsmaður verður að taka þeirri áskorunn og ábyrgð sem ráðgjafastarfið hefur í för með sér.
Regla 3: Færni.
Áfengis- og vímuefnaráðgjafi verður að viðurkenna að starfsgreinin byggir á heildar færnistöðum sem stuðla að hagsmunum samfélagsins,skjólstæðingsins,ráðgjafans og starfsgreinarinnar í heild. Ráðgjafinn verður að viðurkenna þörfina fyrir símenntun sem hluta starfslegrar færni. a. Æskilegt er að áfengis- og vímuefnaráðgjafi láti vita ef hann (hún) hefur vitneskju um óhæfa og réttindalausa einstaklinga sem vinna við ráðgjöf.
b. Áfengis- og vímuefnaráðgjafi sem verður var við siðlausa hegðun eða ófaglega starfshætti ætti að skýra yfirmönnum eða viðeigandi yfirvöldum sem réttindin veita frá slíkum brotum.
c. Áfengis- og vímuefnaráðgjafi þarf að geta viðurkennt takmörk og takmarkannir á hæfni sinni og bjóða ekki þjónustu eða beita aðferðum sem ekki eru á hans valdi.
d. Áfengis- og vímuefnaráðgjafi þarf að viðurkenna áhrif skerðingar starfsgetu og hann (hún) þarf að vera fús til að leita viðeigandi meðferðar. Æskilegt er að ráðgjafi njóti andlegs eða félagslegs stuðnings í einhverri mynd.
Regla 4:Lagalegir og siðferðislegir mælikvarðar.
Áfengis- og vímuefnaráðgjafar verða að halda laga -og siðareglur þær sem lúta að fagmannlegri hegðun.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi má ekki lýsa yfir,hvorki beint né óbeint,starfeiginleikum/færni sem hann býr ekki yfir.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi má ekki notfæra sér tengslin við stéttarfélagið í því augnamiði sem er ekki í samræmi við yfirlýstan tilgang félagsins
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi má ekki tengjast eða leyfa að nafn hans sé nota í tengslum við nokkra þjónustu eða vöru á rangan eða villandi hátt.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi sem tengist þróun eða auglýsingu bóka eða annarrar vöru sem boðin er til sölu verður að bera ábyrgð á að tryggja að bækur þessar eða vörur séu kynntar fagmannlega og sannleikanum samkvæmt.
Regla 5:Opinberar yfirlýsingar.
Áfengis- og vímuefnaráðgjafi þarf að viðurkenna takmarkannir núverandi þekkingar við opinberar yfirlýsingar varðandi alcoholisma eða vímuefnasjúkdóma.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi sem kemur fram fyrir hönd starfsgreinarinnar gagnvart skjólstæðingum öðrum fagmönnum eða almenningi,þarf að skýra satt og rétt frá viðeigandi upplýsingum.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi þarf að viðurkenna og skrá efni og þau gögn sem hann notar.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi sem veitir þjálfun í hæfni aðferðum sem verður að skýra áheyrendum frá þeirri þjálfun/hæfni sem krafist er til að stunda þetta starf/hæfni á fullnægjandi hátt.
Regla 6: Útgáfuviðurkenning
Áfengis- og vímuefnaráðgjafi verður að viðurkenna alla þá sem hafa lagt fram skerf að útgefnu efni, svo og verk sem útgefið efni byggir á.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi verður að viðurkenna meðhöfund, mikilvægt framlag faglegs eðlis fleiri einstaklinga til sameiginlegs verkefnis. Höfundur sá sem hefur lagt efnislega höfuðskerf til útgáfu skal skráður efst á lista.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi verður að viðurkenna neðanmáls eða inngangi minni framlög faglegs eðlis, mikilvæga skrifstofu- eða svipaða aðstoð og annað minni háttar framlag.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi verður að láta getið sérstaklega óbirts efnis sem hefur bein áhrif á rannsóknir hans eða skrif.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi sem safnar framlögum annarra og býr til prentunar verður að skrá sjálfan sig sem ritstjóra, svo og aðra aðstandendur verksins.
Regla 7: Velferð skjólstæðings
Áfengis- og vímuefnaráðgjafi verður að virða heilindi og vernda velferð einstaklings þess hóps sem ráðgjafinn vinnur með.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi verður að skilgreina fyrir sjálfum sér og öðrum eðli og stefnu trúnaða og ábyrgðar og upplýsa alla um þessar skuldbindingar.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi verður, þegar um faglega hagsmunaárekstra er að ræða, að hafa hagsmuni skjólstæðings í fyrirrúmi.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi verður að slíta ráðgjafar- eða meðferðarsambandi þegar honum er það nokkurn veginn ljóst að skjólstæðingur nýtur ekki lengur góðs af því eða vísa honum í annað úrræði.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi sem biður skjólstæðing sinn að skýra frá persónulegum upplýsingum frá öðrum fagmönnum eða leyfir að birta slíkar upplýsingar verður að skýra skjólstæðingnum frá eðli slíkra boðskipta. Upplýsingar þær sem veittar eru eða fengnar með upplýstu samþykki má einungis nota í yfirlýstu augnamiði.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi má ekki nota skjólstæðing í sýningarhlutverki í vinnuhópumhverfi þar sem slík þátttaka kynni að skaða skjólstæðinginn.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi verður að tryggja viðeigandi vinnuumhverfi til að vernda skjólstæðinginn fyrir skaða og sjálfan sig og starfsgreinina fyrir ámæli.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi verður að vinna með öðrum heilbrigðisstéttum við að veita skjólstæðingi sem fær lyf skv. Læknisráði, umhverfi sem hlúir að skjólstæðingum.
Regla 8: Trúnaður
Áfengis- og vímuefnaráðgjafi verður að taka sem frumskuldbindingu skylduna að vernda einkalíf skjólstæðingsins og má ekki greina frá trúnaðarupplýsingum sem hann hefur fengið við kennslu, störf eða rannsóknir.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi verður að skýra skjólstæðingi frá og fá leyfi á sviðum sem líklega eru til að hafa áhrif á þáttöku skjólstæðingsins svo sem hljóðritun viðtals, notkun efnis úr viðtali til þjálfunar, og áheyrn þriðja aðila að viðtali.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi verður að gera ráðstafarnir til að viðhalda trúnaði og til endanlegar ráðstöfunar trúnðarskráa.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi má ekki greina frá trúnaðarmálum nema greinileg hætta vofi yfir skjólstæðingnum eða öðrum og þá einungis viðeigandi fagmönnum eða opinberum aðilum.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi má einungis ræða upplýsingar sem hann hefur fengið í meðferð- eða ráðgjafarsambandi í viðeigandi umhverfi, og þá einungis í faglegu augnamiði sem greinilega tengist málinu. Skriflegur og munnlegar skýrslur skulu einungis greina frá atriðum sem snerta tilgang matsins og leitast skal við í hvívetna að forðast óþarfa röskun á einkalífi.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi má einungis nota sjúkraskrár og önnur gögn sem efni í kennslu eða í rituðu máli ef einkenni persóna sem koma við sögu hafa verið dulin á viðeigandi hátt.
Regla 9: Tengsl við skjólstæðing
Áfengis- og vímuefnaráðgjafi verður að skýra skjólstæðingi frá höfuðþáttum hugsanlegs sambands.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi verður að upplýsa skjólstæðing um og fá samþykki skjólstæðings á sviðum sem líklega eru til að hafa áhrif á þátttöku skjólstæðingsisns, svo sem hljóðritun viðtals, notkun efnis úr viðtali til þjálfunar og eða áheyrn þriðja aðila að viðtali.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi verður að greina tilsjónarmanni eða ábyrgðarmanni frá kringumstæðum sem kunna að hafa áhrif á sambandið ef skjólstæðingur er ófullveðja eða sviptur sjálfræði.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi má ekki stofna til meðferðarsambands við fjölskyldumeðlimi skjólstæðingsins, nána vini eða samstarfsmenn eða aðra þar sem slíkt tvöfalt samband gæti stofnað velferð skjólstæðingsins í hættu.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi má ekki hafa nein kynferðisleg samskipti við skjólstæðing í það minsta 2 ár frá því að skjólstæðingur sótti meðferð/viðtöl.
- Samskipti við skjólstæðing þar sem persónulegir hagsmunir Áfengis- og vímuefnaráðgjafi geta komið til álita eru ekki leyfileg í eitt ár frá meðferðarlokum.
Regla 10: Tengsl við aðra í starfi
Áfengis- og vímuefnaráðgjafi verður að umgangast starfsfélaga með virðingu, kurteisi og sanngirni og verður að sýna öðrum starfsgreinum sömu faglegu háttvísi.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi má ekki bjóða fagþjónustu skjólstæðingi sem nýtur ráðgjafar annars fagmanns nema með vitund hins fagmannsins eða að loknu sambandi skjólstæðings við hinn fagmanninn.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi verður að vinna með rétt skipuðum siðanefndum fagmanna og veita nauðsynlegar upplýsingar án tafar nema trúnaðarkröfur hamli því.
Regla 11: Greiðslur
Áfengis- og vímuefnaráðgjafi verður í starfi að haga fjármálum í samræmi við faglegar reglur sem tryggja bestu hagsmuni skjólstæðingsins og starfsgreinar.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi verður, við ákvörðun taxta fyrir fagþjónustu, að gæta vandlega að greiðslugetu skjólstæðings.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi má ekki inna að hendi eða taka á móti neinum umboðslaunum, afslætti eða nokkrum öðru formi greiðslu fyrir tilvísun skjólstæðinga til faglegrar þjónustu. Ráðgjafinn má ekki ekki taka þátt í að deila þóknun.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi í föstu starfi á stofnun eða sjálfstætt má ekki nýta samband við skjólstæðing sér til framdráttar persónulega eða til viðskiptalegs hagnaðar stofnunar eða fyrirtækis af nokkurri tegund.
- Áfengis- og vímuefnaráðgjafi má ekki taka við einkagreiðslu eða nokkuri annarri gjöf eða umbun fyrir fagvinnu með einstakling sem rétt á slíkri þjónustu hjá stofnun eða þjónustuskrfstofu. Stefna stofnunar/skrifstofu kann að kveða sérstaklega á um einkavinnu með skjólstæðingnum af hálfu starfsmanna, og í slíkum tilvikum verður að gera skjólstæðingi fulla grein fyrir öllum stefnuþáttum sem snerta skjólstæðinginn.
Regla 12: Samfélagslegar skuldbindingar
Áfengis- og vímuefnaráðgjafi verður að vera talsmaður fyrir breytingum á opinberri stefnu og löggjöf sem stuðlar að tækifæri og valkostum fyrir alla sem hafa orðið fyrir barðinu á sjúkdómnum alkóhólisma og annari vímuefnafíkn.
Ráðgjafar ættu ávalt að stefna að því að upplýsa almenning með boraralegri og faglegri þátttöku í félagsmálum að allir, einkum þurfandi og afskiptir einstaklingar, hafa aðgang að nauðsynlegum úrræðum og þjónustu. Áfengis- og vímuefnaráðgjafi verður að taka persónulega og faglega afstöðu sem stuðlar að almannaheill.
---